Kranabifreið rann út í sjó - eigandinn veit ekki hvernig það gerðist

Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkveldi og nótt. Nokkrir einstaklingar voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá kom eldur upp í gám í Spönginni í Grafarvogi. Var slökkviliðið kallað út og hann slökktur fljótt og örugglega. 

Þá rann mannlaus kranabifreið út í sjó í Kópavogi um ellefu leitið í gærkveldi. Eigandi kranabifreiðarinnar vissi ekki hvernig það gat gerst. Verður unnið að því í dag að draga hann á land. 

Skömmu eftir miðnætti var maður handtekinn vegna líkamsárásar á veitingastað í miðborginni og verður hann yfirheyrður í dag.