Krakkar hjálpuðu þingmanni í strætó

Katrín Júlíusdóttir þingmaður lýsir því á fésbók í gær hvernig ungmenni í strætó hjálpuðu henni. Hún telur æsku samtímans betri en kynslóðarinnar á undan.

Í færslunni lýsir Katrín, sem er móðir tvíbura, að hún hafi verið sveitt á ferð með litlu prinsana á leið í leikskólann með strætó í morgun.

Kem inn í þéttsetinn fjarkann. Standa strax upp fyrir okkur strákur og stelpa og bjóða okkur sætin sín,“ skrifar Katrín og er ekki sjálfgefið.

„Þar sem við sitjum þakklát í sætum okkar bremsar strætó og ég missi töskuna mína frá mér. Áður en ég náði að meðtaka það var sami strákur búinn að rétta mér hana og kastaði svo á mig fallegri kveðju þegar þau fóru úr vagninum við MK. Þið sem hafið áhyggjur af unga fólkinu getið hætt því, þau eru mikið betri en við vorum!“

Skrifar þingkonan Katrín og horfir björtum augum fram.