„Þátturinn verður byggður upp með kraft og kjark að leiðarljósi. Viðmælendur verða fólk sem þorir að orða hugsanir sínar. Þannig viljum við vera,“ segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Þjóðbrautar, sem er í óðaönn að ljúka undirbúningi að tveggja tíma þjóðmálaþætti í útvarpi Hringbrautar. Þátturinn verður á dagskrá alla laugardaga milli klukkan tíu og tólf. „Við tökum pólitíkina á laugardagsmorgnum og sofum út á sunnudögum.“
Meðal gesta Sigurjóns í fyrramálið verða Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, oftast nefndur Lobbi, Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, en kennarastéttin virðist í bráðri hættu, engir kjarasamningar, æ færri vilja læra til kennara, launin lök og óvissan mikil. Eins verða gestir þáttarins þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður og margreyndur blaðamaður og Jón Páll Eyjólfsson, leikhússstjóri á Akureyri.
„Fleiri eiga eftir að bætast við,“ segir Sigurjón.
Gott er að minna hvernig hlustendur geta stillt á útvarp Hringbrautar:
89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri