Kraftaverkin gerast hjá hringsjá

Það er óhætt að segja að kraftaverkin gerist hjá náms- og starfsendurhæfingu Hringsjár í Reykjavík, en hún er rekin af Öryrkjabandalagi Íslands og fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir.

Af því tilefni sýnir Hringbraut í kvöld 30 mínútna langan þátt um starfsemi Hringsjár sem skilað hefur hundruðum einstaklinga sem flosnað hafa upp úr námi eða tapað starfsorku sinni um skeið á nýjaleik út í atvinnulífið eða í frekara nám.

Í þættinum verður rætt við Helgu Eysteinsdóttur, forstöðumann Hringsjár og Gígju Baldursdóttur, kennara um þá persónulegu sigra sem unnir eru í þriggja anna náminu á staðnum, en aukin heldur ræða nemarnir Árni Kristjánsson, Daníel Hjálmar Eiríksson, Helga Sigurðardóttir og Sóley Hauksdóttur um reynslu sína af skólavistinni, en þau hafa ýmist glímt við kvíða, þunglyndi, mikla neyslu eða stoðkerfiserfiðleika áður en þau skelltu sér í námið sem í öllu tilvikum hefur skilað þeim úr vörn í sókn í lífinu.

Þátturinn hefst klukkan 20:30 í kvöld.