300 þúsunda krafan stendur óhögguð

Björn Snæ­björns­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins, seg­ir ljóst að hækk­un dag­vinnu­launa á móti lægra yf­ir­vinnu­álagi verði ekki samþykkt af hálfu SGS í þess­um kjara­samn­ing­um. Því standi kröfu­gerð sam­bands­ins um 300 þúsund króna lág­marks­laun óhögguð.


„Okk­ur líst ekki á að setja þetta inn í þessa samn­inga. Það er frek­ar að hægt sé að skoða þetta á milli samn­inga og þetta eigi sér lengra ferli. Þetta verður ekki lausn­in á þess­um samn­ing­um,“ seg­ir Björn við Morgunblaðið í dag.


SA setti fram hug­mynd­ir sín­ar við VR og Flóa­banda­lagið í gær. „Við fyrstu sýn kem­ur þetta ágæt­lega út en við þurf­um lengri tíma til að geta metið það end­an­lega,“ sagði Ólafía B. Rafns­dótt­ir, formaður VR. Sig­urður Bessa­son hjá Efl­ingu var ekki eins já­kvæður. „Ég tel að við eig­um enn tölu­vert langt eft­ir áður en við klár­um kjara­samn­inga,“ seg­ir hann í um­fjöll­un um kjaraviðræðurn­ar í Morg­un­blaðinu í dag.