Öryggisreglur hafa verið hertar til muna frá því Hvalfjarðargöngin voru grafin, fyrir rúmum 20 árum. Ný göng eða tvöföldun gangnanna verða að vera breiðari og með minni halla en gömlu göngin og allt að tveimur kílómetrum lengri. Skortur á neyðarútgöngum í Hvalfjarðargöngum kallar á að ný göng verði grafin. Samkvæmt evróputilskipun um öryggisráðstafanir í jarðgöngum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar og Mannvits um tvöföldun Hvalfjarðarganga.
Þar kemur m.a. fram að hagstæðast sé að grafa ný göng samhliða gömlu göngunum og hafa tengingu á milli þeirra. Umferðin um göngin mun sprengja undanþágu í reglum um hámarksumferð innan fárra ára, ef fer sem horfir.
Fjallað er um skýrsluna í Fréttablaðinu í dag og einnig Morgunblaðinu en þar segir að lengingin muni auka kostnað.
Núverandi göng eru 5.770 metrar eða um 6 kílómetrar. Ný göng, austan við þau gömlu, yrðu að vera um 7.500 metrar til að uppfylla öryggiskröfur. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvenær ráðist verður í þessa framkvæmd.