Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) óttast að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði. Hann vísar hér í kröfu Félags íslenskra náttúrufræðinga um 30% launahækkun í kjaraviðræðum sínum við ríkið.
Þetta kemur fram í samtali hans við RÚV.
Það sem veldur Halldóri Benjamín áhyggjum er að stórir hópar opinberra starfsmanna eru með lausa samninga núna eða eru við það að losna á næstu mánuðum.
Halldór Benjamín rifjaði upp að kjaraviðræður við opnbera starfsmenn hafa oft skilað sér í meiri hækknum en innistæða hefur verið fyrir.
Hann óttast að ef samninganefndir ríkis og sveitarfélaga standi ekki í lappirnar þá munu þessar kröfur hellast yfir almenna markaðinn í byrjun árs 2018 sem er mjög slæmt að hans mati.
Ákvæði er í kjarasamningum á almenna markaðnum um að ef aðrir hópar hækka umfram almenna markaðinn sé hægt að fara fram á sambærilegar hækkkanir ella segja upp samningnum.
Viðtal RÚV við Halldór Benjamín er á vefnum www.ruv.is
Góður gangur í hagkerfinu undanfarin ár hefur skilað sér í bættum kjörum launþega og hag heimilanna. Sterka staða íslensks þjóðarbús endurspeglast í sterkum hagtölum.
Kaupmáttur er mikill í sögulegum og alþjóðlegum samanburði. Núverandi staða þjóðarbúsins er sterk og því mikilvægt að að standa vörð um þau bættu lífskjör sem náðst hafa þannig að unnt verði að byggja enn frekar upp kaupmátt heimila öllum til hagsbóta.
Slæm niðurstaða væri fyrir alla Íslendinga að hleypa öllu í bál og brand á vinnumarkaði.