Krafa dagsins; gröfum fyrir græðgi!

Verðmætamatið er samt við sig. Fornleifafræðingar eru beðnir um að flýta sér og fengnir eru til landsins sænskir sérfræðingar til að taka þrívíddarmynd af gamla hafnargarðinum.

Þetta skrifar rithöfundurinn Guðmundur S. Byrnjólfsson í nýjasta pistlinum sínum á hringbraut.is en hann á fjölda aðdáenda fyrir frískleg skrif sín á vefnum. Núna er honum umhugað um menningarverðmæti, sem nútíminn hafi engan áhuga á, svo sem forna langelda og hafnargarða: \"Það er nefnilega ómögulegt að halda í hann,\" skrifar hann um garðinn \"og hafa eins og hann er – en nauðsynlegt að eiga af honum þrívíddarmynd; því það er svo nútímalegt.\"

Og það drýpur glatt úr penna Guðmundar: \"Hvergi má staldra við í greftrinum, æðinu – það er vítavert að stoppa. Bannað að hætta við. Þá gæti nútíminn tapast og græðgin fengið hiksta. Jafnvel dáið – og það viljum við ekki, því þá kemur „stöðnunin“ og étur okkur. Úr sínum eigin aski. Látum ekki fornar rústir stöðva framrás nútímans, hins glæsilega samtíma sem nú leitar forvera síns – sem heitir „fyrir örfáum árum“.\"

Hann segir dagskipunnina vera skýra hér á landi: \"Djöflum um koll öllu því sem var „einu sinni“ enda er einu sinni bara ævintýramál og –þjóðsagna. Byggjum frekar hótel og seljum útlendingum lunda úr flísefni og frotté ísbirni.\"

Sjá má pistilinn í heild sinni hér til hliðar á vefsíðunni.