Krafa dagsins: frelsum geirvörtuna

Konur eru hvattar til að gefa brjóstunum sínum frelsi og svigrúm í dag, ýmist með því að að leyfa þeim að njóta sín fyrir allra augum eða hafa þau frjáls innan klæða og óheft af brjóstahöldurum. Þetta frelsisátak geirvörtunnar fimmtudaginn 26. mars ár hvert hefur lengi vel einskorðast við háskóla- og framhaldsskólasamfélagið en er að breiðast út á vinnumarkaðinn, öllum konum til nokkurs léttis, enda almælt að brjóstin taki sig út betur þegar geirvartan fær að njóta sín.


Íslenskir samfélagsmiðlar hafa logað það sem af er degi enda siðurinn að gera strandhögg á eyjunni bláu með þvílíkum að vart virðist nokkur stúlka eða kona hafa klætt sig í brjóstahaldara í morgun. Talsmenn átaksins hér heima segja það furðulegt að þessi pínulitli hluti af líkama hverrar konu sem geirvartan er skuli enn særa blygðunarkennd margra á meðan karlar geti berað brjóst sín hvar sem er án þess að nokkur einu sinni taki eftir því.


Sumsé; krafa dagsins er frelsum geirvörtuna.