Krabbameinssjúkir sérvaldir daglega

Fundað er daglega á geislameðferðardeild Landspítalans þar sem ákveðið er af fagfólki hverjir þurfa mest og helst á geislameðferð að halda og hverjir geti beðið. Þessir fundir koma til vegna verkfalls geislafræðinga á spítalanum, en þeir eru félagsmenn í BHM og eru í ótímabundnu verkfalli. Fyrir vikið verður fjöldi krabbameinssjúklinga að bíða meðferðar.


Á annað hundrað geislafræðingar spítalans er í verkfalli og fyrir vikið er deildin rekin á hálfum afköstum.


Haft er eftir JakobI Jóhannssyni krabbameinslækni og yfirlækni geislameðferðar krabbameina á Landspítalanum og staðan á deildinni verði orðin alvarleg um mánaðamótin. Í næstu viku þurfi starfsfólk deildarinnar virkilega að fara að skoða hver staðan verði því hópurinn  sem nú bíði meðferðar geti ekki beðið endalaust.


"Sjúklingar eru ekki í verkfalli," segir hann í blaðinu og ítrekar að lífsnauðsynlegum meðferðum sé ekki slegið á frest.