Krabbameinsmeðferð Ólafar Nordal er lokið og gekk hún að óskum. Þetta upplýsir innanríkisráðherra á persónulegri facebook-síðu sinni.
\"Nú er ég að ljúka lyfjameðferðinni sem hófst í byrjun ársins. 6. og síðasti lyfjaskammturinn er afstaðinn. Sem betur fer hefur allt gengið að óskum og meðferðin borið tilætlaðan árangur. Fyrir það er ég mjög þakklát,\" segir Ólöf.
Hún segir að meðferðin hafi tekið á.
\"Eigum við ekki að segja (eins og satt er) að þetta herði og dýpki mann? Það tekur mig auðvitað tíma að jafna mig eftir þetta tímabil, en hvergi er betra að hugsa um lífið og framtíðina en í íslenska vorinu. Það er svo dásamlegt að horfa á gróðurinn taka við sér, heyra fuglana syngja og sjá grasið grænka. Ég finn það alltaf betur og betur hve árstíðirnar skipta miklu máli fyrir sálartetrið. Öllum vinum mínum og kunningjum og fólki sem ég þekkti ekki áður þakka ég fyrir kveðjur, hvatningu og vinarþel í gegnum þessa þolraun. Munum að njóta hvers dags til fulls!\"