Kötturinn grettir er fastagestur í vesturbæjarlaug: skoðar fólk og fiska og fær sér sopa úr heitapottinum - sjáðu myndirnar

Þeir eru ekki margir fjórfættir fastagestir í sundlaugum landsins en kötturinn Grettir laumar sér þó reglulega í heimsókn í Vesturbæjarlaug.

Vel hefur verið tekið í heimsókn Grettis í sundlaugina enda ekki mikil ónot sem fylgja svona litlum og krúttlegum heimsóknargestum. Starfsfólk sundlaugarinnar segir Gretti aðallega koma til þess að skoða fólk og fiska á sundi en það hafi þó komið fyrir að hann hafi reynt að fá sér smá sopa í kalda pottinum.

\"\"