Getur þú bjargað Gísla? „Gísli kann ekki að mjálma en gaggar og baular“

Gísli kom til Villikatta á Austurlandi síðasta vetur eftir að hafa verið á vergangi árum saman í Skriðdal. Gísli, sem að sögn umönnunnaraðila sinna, er yndislegur köttur en hann kann ekki að mjálma. Þess í stað gaggar Gísli og baular.

„Gísli er yndislegur köttur og ótrúlega skemmtilegur karakter sem hefur tekið að sér fjölda villikettlinga, kennt þeim alla helstu kattasiði og jafnvel leyft þeim að leggjast á spena. Hann elskar fólk, er barngóður og semur mjög vel við læður en á það til að vera dólgur við fullorðna fressa,“ segir í lýsingu á skapgerð Gísla á síðu villikatta á Austurlandi á Facebook.

Þar er Gísli sagður mjög heimakær köttur sem sefur um 23 klukkustundir á sólarhring en hann er kominn á efri ár sín.

„Hann er við mjög góða heilsu en þyrfti að léttast aðeins. Gísli kann ekki að mjálma en gaggar og baular.“

Margir hafa skrifað við stöðufærsluna um Gísla sem virðist vera vel þekktur á Austurlandinu, enda er hann greinilega mjög sérstakur köttur sem leitar sér nú að sama stað til þess að njóta efri áranna.