Köttur Steinunnar kom heim með óvæntan glaðning í skiptum fyrir góðan mat

Rey köttur Steinunnar Ingólfsdóttur kom með heldur betur óvæntan glaðning heim í skiptum fyrir betri mat.

Steinunn greindi frá málinu á Facebook-síðu sinni í gær.

„Í gegnum árin hefur Rey notað hárteygjurnar mínar sem samskiptaform. Hún setti alltaf hárteygju við matardallinn til þess að vera viss um að ég tæki eftir matardallinum, ekki það að hann hafi verið tómur heldur vill hún fá e-ð gott eins og blautmat eða túnfisk eða bara e-ð annað en alltaf þurrmat,“ segir Steinunn og heldur áfram:

„Eftir að við fluttum á Garðastræti og hún varð útiköttur kom/kemur hún heim með hárteygjur svo andlitsgrímur og núna í morgun BRJÓSTARHALDARA sem gjaldmiðil fyrir betri mat. Ég sver það að hún sé örugglega að lauma sér inn í þvottarhús nágrannanna til að stela dóti.“

Steinunn segir að hana hafi stundum grunað það því oft á tíðum hafi grímurnar og hárteygjurnar sem Rey kemur með verið voðalega hreinar.

„Hún er alveg agaleg og veit sko hvað hún vill. Ég verðlauna hana ekki fyrir svona stuld, hún virðist samt ekki ætla að gefast upp. Elsku Rey hún er alveg milljón,“ segir Steinunn og bætir við að hún viti ekki alveg hvað hún eigi að gera við rennandi blautan brjóstarhaldra sem hún hafi geymt að svölunum síðan í morgun.