Köstuðu rýrð á æru þing og þjóðar

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins skrifaði aðsenda grein er nefnist „Karlar sem hatast við konur“ í Morgunblaðið í morgun. Þar svarar hún gagnrýni Karls Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar, fyrrverandi þingmanna flokksins og Halldórs Gunnarssonar, sem sat í stjórn flokksins, og slær hvergi af.

Inga segir það kaldhæðnislegt að Ólafur hafi á dögunum fullyrt að mikil orðsporshætta stafi af því hvernig skipan mála flokksins sé háttað. „Þarna talar maður sem  nýverið hefur full­kom­lega að eig­in frum­kvæði og hvöt­um eyðilagt eigið orðspor sem stjórn­mála­maður með því að taka þátt í samsæri sem hef­ur kastað rýrð á æru þings og þjóðar. Ólaf­ur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son fé­lagi hans eru nú farn­ir í sögu­bæk­urn­ar sem fyrstu þing­menn lýðveld­is­sög­unn­ar sem eru látn­ir sæta ábyrgð fyr­ir gjörðir sín­ar með því að þeir eru rekn­ir úr sín­um eig­in flokki fyr­ir af­brot sín. Eng­ir nema þeir sjálf­ir frömdu þau ótrú­legu af­glöp að fara til sam­særis­fund­ar við stjórn flokks póli­tískra and­stæðinga Flokks fólks­ins á Klaust­ur Bar,“ segir Inga.

Um brottvísun Ólafs og Karls Gauta úr flokknum segir Inga að þeir hafi aðeins átt eitt er­indi á Klaust­ur Bar þetta kvöld og að þeir hafi vitað mæta­vel hvað til stóð, að fá þá til að ganga í Miðflokkinn. „Þeir voru að svíkja flokk­inn sem kom þeim á þing. Er upp­víst varð hvað þarna hafði farið fram átti stjórn Flokks fólks­ins eng­an ann­an kost en að fara fram á af­sögn þess­ara tveggja þing­manna. Þegar þeir urðu ekki við því þá var þeim vikið úr flokkn­um og svipt­ir öll­um trúnaðar­stöðum á hans veg­um. Þeir höfðu með gjörðum sín­um báðir fyr­ir­gert öllu trausti,“ segir Inga.

Svarar gagnrýni um fjármál flokksins

Karl Gauti, Ólafur og Halldór hafa m.a. gagnrýnt hvernig staðið er að fjármálum flokksins og að Inga hafi verið gjaldkeri og prókúruhafi flokksins.

Hún segir einfalda skýringu fyrir því að hún hafi verið prókúruhafi og gjaldkeri og að fjármál flokksins séu með besta móti. „Flokk­ur fólks­ins er rétt tveggja og hálfs árs gam­alt stjórn­mála­afl. Lengst fram­an af barðist þessi hreyf­ing í bökk­um fjár­hags­lega enda að upp­lagi mest­an part stofnuð fyr­ir mitt frum­kvæði af fá­tæku fólki, ör­yrkj­um og öldruðum til að berj­ast gegn ör­birgð og mis­rétti í okk­ar ríka landi. Sem formaður hef ég í fullu sam­ráði við stjórn þurft að gæta ýtr­ustu ráðdeild­ar þar sem öllu skipt­ir að hafa full­komna yf­ir­sýn frá degi til dags. Þetta hef­ur tek­ist far­sæl­lega. Flokk­ur­inn býr nú við heil­brigðan fjár­hag. Hann er skuld­laus og slíkt er afar fátítt meðal ís­lenskra stjórn­mála­flokka í dag,” segir Inga.

Hún bætir við: „Reikn­ing­ar flokks­ins hafa aldrei hlotið at­huga­semd­ir end­ur­skoðenda og þeim hef­ur verið skilað í sam­ræmi við lög og regl­ur. Þeir hafa ávallt verið opn­ir öll­um stjórn­ar­mönn­um, líka Karli Gauta Hjalta­syni. Hall­dór Gunn­ars­son sat í stjórn og þriggja manna fjár­hags­ráði flokks­ins, var með aðgang og eft­ir­lits­heim­ild að heima­banka flokks­ins. Hann und­ir­bjó árs­reikn­inga ásamt gjald­kera í hend­ur lög­gilts end­ur­skoðanda. Hall­dór Gunn­ars­son vissi um öll fjár­mál Flokks fólks­ins frá A til Ö. Það er aumt að horfa upp á Hall­dór, Karl Gauta og Ólaf í hefnd­ar­leiðangri nú þar sem þeir reyna að sá fræj­um efa­semda og tor­tryggni um fjár­mál Flokks fólks­ins um leið og þeir vita bet­ur.“