Mannréttindadómstóll Evrópu birti í dag úrskurð sinn vegna skipunar Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra á fjórum dómurum við Landsrétt og komst að þeirri niðurstöðu að hún braut gegn 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir að málið hafi gífurleg áhrif á réttarkerfið á Íslandi. Hann segir m.a. að kostnaðurinn sé gríðarlegur fyrir samfélagið, að fjórir dómarar við Landsrétt verði líklega að víkja og að líklegt sé að reyna muni á hvort dómar sem þeir hafi dæmt í standi.
Ragnar segir í samtali við Fréttablaðið að enginn muni komast upp með að hunsa niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann segir að með skipun Sigríðar á dómurunum fjórum, þeim Arnfríði Einarsdóttur, Ásmundi Helgasyni, Jóni Finnbjörnssyni og Ragnheiði Bragadóttur, hafi verið ákveðið að hinar pólitísku línur myndu ráða í stað þess að lögum yrði framfylgt.
Landsréttur tilkynnti í kjölfar úrskurðar MDE að öllum dómsmálum sem dómararnir fjórir koma að verði frestað út þessara viku. Verið er að meta næstu skref, en Ragnar telur erfitt fyrir þau að halda áfram sem dómarar við Landsrétt þar sem þau séu að einhverju leyti ekki hæf til að gegna starfinu samkvæmt þessum úrskurði.
Sem kunnugt er voru Ástráður Haraldsson, Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Jón Höskuldsson og Eiríkur Jónsson, á lista hæfnisnefndar yfir hæfustu umsækjendur vegna skipan dómara við Landsrétt en voru hvergi sjáanlegir á lista Sigríðar þegar kom að skipan 15 dómara við Landsrétt.
„Þetta er, því miður, alveg óskaplegt fyrir framkvæmdavaldið, löggjafarvaldið og dómsvaldið okkar,“ segir Ragnar.