Icelandair Group birti eftir lokun markaða síðastliðinn þriðjudag uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Uppgjörið vakti mikla athygli þar sem félagið sendi frá sér afkomuviðvörun þann 8. júlí síðastliðinn þar sem EBITDA spá fyrir árið í ár var lækkuð úr 170-190 milljónum dollara niður í 120-140 milljónir. Varð það til þess að hlutabréfaverð félagsins lækkaði um 23 prósent daginn eftir að tilkynningin var birt. Voru ástæður lækkunarinnar meðal annars rask á flugáætlun félagsins, seinkun á innleiðingu nýrra flugvéla auk þess sem fram kom að spá félagsins um hækkandi meðalfargjöld á seinni hluta ársins myndi ekki ganga eftir.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/kostnadur-vex-afram-umfram-tekjur/148888/