Kostnaður á sex þingum

Eins og staðan er í dag er ómögulegt að segja hvaða upplýsingar verða að lokum birtar um þingfararkostnað Alþingismanna. Fari svo að seilst verði aftur um 10 ár eins og rætt var í dag, þá þarf að finna þar til gerð gögn sem tilheyrir sex síðustu þingum.

Mannabreytingar hafa orðið verulegar á þingliðinu svo ekki sé meira sagt. Tíminn nær þá aftur til Alþingismanna þegar Geir Haarde stýrði í stjórnarráðinu, frá vorinu 2007, fram og með ráðuneyti Jóhönnu Sig, Sigmundar Davíðs, Sigurðar Inga Jóhannssonar og síðan Bjarna Benediktsonar og áfram að núverandi þingi og ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. 

Endurnýjun Alþingismanna hleypur á mörgum tugum á þessum tíma svo vægt sé til orða tekið og reglurnar um þingararkostnað hafa tekið einhverjum breytingum á undanförnum áratug. Þess heldur munu upplýsingarnar bæði varpa ljósi á menn en líka störf Alþingis þá og nú hvað varðar þessar reglur, eftirlitið með þeim og ekki síst hverjir fóru eftir þeim. 

Lengra verður seilst í úttekt á þingararkostnaði Alþingmanna en rætt var í fyrri viku ef marka má tíðindi af fundi forsætisnefndar Alþingis í dag. Ekki var tekin formleg ákvörðun en talið að samhljómur milli þingflokka sé um að upplýsingarnar skuli ná a.m.k. tíu ár aftur í tímann eða frá 2008.