Það er ekki ókeypis að komast í gegnum stúdentspróf eins og Hringbraut sagði frá í gær. Nemendur, 25 ára og eldri, þurfa eftir breytingusem Illugi Gunnarsson menntamálráðherra stóð fyrir í fyrrasumar að nýta sér menntastoðir sem kosta 121.000 krónur hjá símenntunarmiðstöð til að komast í Háskólabrú Keilis. Þar er námið fyrir hverja önn kr. 250.000.
Þessar tölur tekur Vilberg Helgason, kennari hjá Háskólabrú Keilis, saman og birtir á þræði um byggðamál á facebook.
„Fjarnemar þurfa að borga það sama og mæta svo á staðarlotur á Reykjanes með ferðakostnaði.
Ef menn fara á Bifröst sem er ódýrara er ólíklegt að þeir komist í HÍ og HA með þann pappír í höndum,“ skrifar kennarinn Vilberg.
Í færslu hans kemur fram að ekki hafi tekist að fá nógu marga nemendur í Háskólabrúarhóp á Akureyri haustið 2015, enda fáir nemendur árið áður í menntastoðum sem er undirbúningshópur, enda 25 ára reglan ekki komin þá.
Svo spyr kennarinn:
„Af hverju er Háskólinn á Akureyri ekki að keyra svona \"frumgreinadeild\" spyrja menn sig.
Hafi fólki þótt erfitt að fara í nám áður er ekki beint verið að gera það auðveldara þar sem ómenntaði hópurinn á ekki þessi 621.000+bókakostnað til að henda í 18 mánaða nám.“
Með ummælum sínum vitnar Vilberg Helgason til fréttar Hringbrautar í gær sem lesa má hér.