Kostaði 21.300 að breyta flugi

Dæmi eru um að kostnaður við að breyta ferðum í innanlandsflugi sé hærri á Íslandi en verðið sem þarf að greiða fyrir flugið sjálft. Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag.

Rætt er við konu sem þurfti að greiða 21.300 krónur fyrir að færa innanlandsflugið um nokkra daga sem er hærri fjárhæð en verðið sem hún greiddi fyrir flugið. Aðstæður konunnar voru viðkvæmar, hún er búsett í Danmörku, veikindi komu upp, hún þurfti að panta fyrst millilandaflug en svo innanlandsflug frá Reykjavík til Akureyrar og til baka. Þegar á daginn kom að hún þurfti að breyta áætlun og konan fékk að heyra hvað það kostaði hugðist híun hætta við flugið innanlands. Þá var henni sagt að ef hún myndi ekki mæta í innanlandsflugið myndi réttur til hennar til að nýta sér bókaða ferð aftur út með hinu bókaða millilandaflugi detta út.

Rætt er við talsmann Icelandair í Fréttablaðinu sem telur málið gefa tilefni til endurskoðunar á framkvæmd skilmála í innanlandsflugi.