Heiðveig María Einarsdóttir, viðskiptafræðingur og fyrrverandi sjómaður segir á Bryggjunni í kvöld að það sé sama hvað nýr kjarasamningur sjómanna og útgerðarmanna hefur að geyma. Framkvæmd kosningarinnar meðal sjómanna um land allt hafi ekki verið samkvæmt reglum sem ASÍ gefur út og Sjómannasambandið er aðili að. Of skammur tími hafi t.d. fengist til að kjósa á ýmsum stöðum. Heiðveig fer fyrir hópi sjómanna sem mun kæra niðurstöðu kosningarinnar.
Í þættinum skreppur Sölvi í Sjóminjasafnið við Grandann í Reykjavík og ræðir við Írisi Gyðu Guðbjarnardóttir sem fer í gegnum sýninguna sem þar er að jafnaði.
Bryggjan er frumsýnd kl.21 í kvöld, mánudag. Endursýnd síðar og einnig á tímaflakkinu.
Heiðveig María greinir frá afstöðu sjómanna í upphafi þáttar: