Kosningastjórinn kunni ekki reglurnar

Kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Sandra Hlíf Ocares hefur orðið uppvís að því að kunna ekki kosningareglurnar sem gilda í borgarstjórnarkosningunum í vor, en starfsmenn á hennar vegum hafa hringt í útlendinga í borginni og sagt þeim að þeir megi ekki kjósa í kosningunum.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar bregst hún við tíðindunum með þeim orðum að um \"byrjendamistök hjá einum sjálfboðaliðanum okkar\" hafi verið að ræða. Í frétt blaðsins kemur þó fram að kosningastjórinn taldi í upphafi samtalsins við blaðamann að íslenskt ríkisfang þyrfti til að mega kjósa í borgarstjórnarkosningunum.

Hið rétta er að fólk má kjósa í sveitarstjórnarkosningunum eftir þriggja til fimm ára búsetu í landinu, íbúar Norðurlandanna eftir þrjú ár, en aðrir eftir fimm ár. Því gilda aðraar og rýmri reglur um kosningaréttinn í sveitarstjórnarkosningum en til þingkosninga þar sem eingöngu ríkisborgarar mega nýta atkvæðisrétt sinn.