Kosningarnar eru í þjóðbraut

Þrír fulltrúar, þriggja flokka, mæta í Þjóðbraut í kvöld þar sem rædd verða skattamál og auðlindagjöld. Víst er að mikið ber á milli skoðanna þeirra sem koma hvað varðar þessi mál.

Þátttakendur verða Björn Valur Gíslason, frá VG, Óttarr Proppé frá Bjartri framtíð og Páll Magnússon frá Sjálfstæðisflokki.

Á síðasta kjörtímabili var þáverandi ríkisstjórn gagnrýndi hástöfum fyrir allt að 200 breytingar á skattalögum. Núverandi ríkisstjórn ætlaði sér að afnema allar þær breytingar. Þannig að ljóst er að mikið ber í milli.

Von er á fjörugri umræðu í Þjóðbraut, sem verður á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.