Kosningaréttinum fagnað í dag

Fyrir einni öld staðfesti konungur lög frá Alþingi sem færðu um tólf þúsund konum sem voru 40 ára og eldri, kosningarétt. Fjölþætt hátíðarhöld vegna þessa aldarafmælis fara nú fram um land allt í dag.

Lögin færðu einnig kosningarétt um 1500 vinnumönnum, sem voru 40 ára og eldri og líka um 1000 karlmönnum sem áður höfðu ekki haft réttinn vegna skilyrða um útsvarsgreiðslu.

19. júní hefur verið kallaður kvennadagurinn og kvenréttindadagurinn frá árinu 1915. Þann dag hafa íslenskar konur og íslensk kvennahreyfing litið til baka og glaðst yfir fengnum rétti.

Fjöldi vinnustaða hefur gefið starfsfólki sínu frí í dag, eða hluta úr þessum merkisdegi, svo sem frá hádegi enda að nógu að hverfa í hátíðardagskránni um allt land, en margvíslegir listviðburðir og mannamót setja sterkan svip sinn á hana.

Hæst ber þó hátíðarfund á Alþingi í dag þar sem eitt mál er á dagskrá, tillaga til þingsályktunar um Jafnréttissjóð Íslands. Þegar búið verður að afgreiða tillöguna mun forseti íslands flytja ávarp og kvennakórinn Vox feminae syngur þar á eftir undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Þvínæst verður opnuð sýning í Skála þinghússins um þingkonur og baráttu kvenna fyrir kosningarétti.

Þá verður stytta af Ingibjörgu H. Bjarnadóttur, fyrstu þingkonu Íslendinga afhjúpuð fyrir utan Skála Alþingis, en verkið, sem gefið er af flestumf fjármálastofnunum landsins, er gerð af Ragnhildi Stefánsdóttur myndhöggvara.