Kosningar til alþingis verða í október

Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins heldur því staðfastlega fram að kosningar til Alþingis verði í október á þessu ári. 

Þetta sagði hún þegar Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir alþingismaður dró í efa í þætti Ólafanna á Hringbraut að ríkisstjórnin myndi efna fyrirheit um kosningar fyrr en vorið 2017. Þáttur Ólafanna verður sýndur í kvöld kl. 21.15 sem hluti af þjóðmálaþættinum Þjóðbraut og endursýndur kl. 23.15. Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir alþingismaður segir í þættinum í kvöld að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi aldrei hafa misst meirihluta sinn á Alþingi.