Forystufólk stjórnmálaflokkanna mætir til Sigmundar Ernis og Lindu Blöndal í viðtal um stóru og mikilvægustu kosningamálin. Hvað greinir flokkana að og hverju lofa þeir fyrir kosningarnar? Og ekki síst: Hvernig ætla þeir að efna loforðin?
Tveir forystumenn mæta hvern mánudag fram að kosningum 28.október. Inga Sæland formaður Flokks fólksins er fyrri gestur kvöldsins og sá síðasti Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Þátturinn er frumsýndur Kl.21