Kosningaloforð framsóknar er frá 1988

Sé litið til baka má sjá að Framsóknarflokkurinn hefur án árangurs beitt sér gegn verðtryggingunni síðan 1988. Flokkurinn var í stjórn frá árunum 1983 til 1991, meðal annars var löng stjórnarseta með Steingrím Hermannsson sem forsætisráðherra. Með hléi þegar Viðeyjarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks var við völd, fer Framsókn aftur í ríkisstjórn frá 1995 til 2009 eða samfleytt í 14 ár. Þessi tími hefur þó ekki nægt til að flokkurinn hafi komið þessu stefnumáli sínu í gegn. Séu orð Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra rifjuð upp frá því að flokkurinn settist í stjórn síðast 2013 er söngurinn sá sami og fyrir 28 árum. Í frétt í Morgunblaðinu frá því í febrúar 2013 segir hann að afnám verðtryggingar sé forsenda fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, annað væri útilokað.