Viðreisn birtir alla framboðslista á laugardag

Skoðanakannanir sýna að Viðreisn á í vök að verjast. Hvort oddvita flokksins og þingmönnum og eljusömum flokksmönnum tekst að snúa vörn í sókn á eftir að koma í ljós.

Flokkurinn stefnir á að bjóða fram í öllum kjördæmum.

Viðreisn heldur fund á Natura hóteli næsta laugardag þar sem ef að líkum lætur verða birtir framboðslistar í öllum sex kjördæmum.

Búist er við að sömu frambjóðendur leiði listana og fyrir síðustu kosningar.

VG eru langstærst í öllum könnunum en spáð er Viðreisn hverfi af þingi eftir kosningarnar. Flokkurinn mælist með um 3% fylgi.

Nú hefur Jarþrúður Ásmundsdóttir gengið til liðs við Viðreisn og eru það nokkur tíðindi því hún var í Sjálfstæðisflokknum.

Bændaforystan átelur landbúnaðarráðherra Viðreisnar harðlega fyrir skipan fólks í verðlagsnefnd búvöru. Viðreisn á því eins og fyrr segir í vök að verjast.

Við þetta má bæta að óvenjumikil spenna er innan Viðreisnar í ljósi slaks fylgis við flokkinn. Þegar framboðslistar Viðreisnar verða komnir fram hafa flest framboð kynnt lista sína og þá mun komast aukin skriður á kosningabaráttuna enda aðeins tuttugu og einn dagur til kosninga

Fylgi við alla flokka hreyfist mikið og það á líka við um Viðreisn. Frammistaða Viðreisnar á lokametrunum skiptir meira máli enda er flokkshollusta minni en áður og kjósendur velja stefnur fremur en flokka. Þetta er hegðunarmynstur sem öll framboð þekkja.

[email protected]