Hulduáróður eykst líka á íslandi

Kosningaáróður er í auknum mæli settur fram nafnlaus hér á landi, eins og annars staðar.

Þetta er ástæðan fyrir því að níu þingmenn Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna hafa lagt fram beiðni til Katrínar Jakosbdóttur forsætisráðherra um að gerð verði skýrsla um aðkomu og hlutdeild hulduaðila í alþingiskosningunum 2016 og 2017.

„Það eru að aukast dæmi um það, og þeim fjölgar, að áróður sé settur fram nafnlaus. Við teljum það einfaldlega ekki heilbrigt í lýðræðisríki og við erum að sjá þetta gerast líka í útlöndum. Þannig það er best bara að það fari fram skoðun á þessu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem lagði skýrslubeiðnina fram, í viðtali við RÚV.

Hún segir líka þurfa að bregðast við hætt­unni á inn­gripi er­lendra aðila í kosn­ing­um á Íslandi.

„Hugsunin á bak við þetta er ekkert bara að draga fram einhverja fjársterka aðila sem standa að baki kosningaáróðri heldur ekki síður hitt að útlendingar, erlendar þjóðir, eru byrjaðar að skipta sér í ríkum mæli af kosningum annarra ríkja. Við erum að tala um Rússa, við erum að tala hugsanlega um Kínverja og fleiri,“ sagði Þorgerður.