Kosið um útgöngusamning may í kvöld

Í kvöld er áætluð kosning í breska þinginu um útgöngusamning Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, vegna fyrirhugaðrar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit. Búist er við að samningurinn verði felldur og þannig muni skapast óvissuástand.

May hefur látið hafa eftir sér að enginn samningur væri betri en slæmur samningur þegar kæmi að útgöngu, en þingmenn þvert á flokka, þar á meðal meðlimir í Íhaldsflokki May, hafa einmitt kallað samning May slæman og hyggjast margir hverjir fella hann.

Í gær var greint frá því að May telji líklegra að ekkert verði af útgöngu verði samningur hennar felldur, fremur en að útganga án samnings eigi sér stað.

Business Insider var meðal þeirra sem hafði greint frá því að þingmenn þvert á flokka breska þingsins hyggist hrifsa löggjafarvaldið af May verði samningurinn felldur, með því að breyta reglum neðri deildar þingsins og taka yfir löggjafarvaldið. Þessir þingmenn muni svo reyna að vinna að betri skilmálum vegna útgöngu, frestun eða stöðvun á Brexit.

RÚV.is greinir frá því að búist sé við að atkvæðagreiðslan um útgöngusamning May fari fram klukkan sjö í kvöld í kjölfar umræðna á þinginu, þar sem breytingartillögur verða einnig lagðar fram.