Kosið um heilbrigðismál og efnahag

Helstu kosningamálin í komandi þingkosningum verða heilbrigðismál og efnahagsmál.

Sú er niðurstaða umræðunnar þegar þær mættust Sigríður Á. Andersen og Björt Ólafsdóttir.

Báðar hyggjast þær sækjast eftir áframhaldandi þingsetu þegar kosið verður í haust.

Sigríður, sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins, rómaði árangurinn í efnahagsmálum. Hvað varðar heilbrigðismál segist hún vilja sjá að hluti Landspítalans verði í einkarekstri. Björt er ekki eins hrifin af því.

Þáttinn má sjá í heild á heimasíðu Hringbrautar, hringbraut.is, innan skamms.