Upplýst var á fundi forsætisráðherra og fjármálaráðherrameð stjórnarandstöðunni að kosið verði til þings í október.
Stefnt er að sumarþingi. Þetta kom fram á fundi stjórnarandstöðunnar með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu í dag.
Síðar hafa þær fregnir borist að forystumenn ríkisstjórnarinnar segja \"að til greina komi\" að þingkosningar verði í seinni hluta október. Það sé þó háð ákveðnum fyrirvörum.
Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, segir við Rúv að fundurinn hafi verið handónýtur. Virðist sem meirihlutinn setji sem skilyrði að koma málaskrá í gegn fyrir kosningar.