Kosið aftur milli rektorsefna

Enginn frambjóðendanna þriggja til rektors Háskóla Íslands náði hreinum meirihluta í kjörinu sem fram fór í gærdag. Minnstu munaði þó að Jón Atli Benediktssyni næði rífum helmingi greiddra atkvæða, en hann hlaut tæp 49% atkvæða í kjörinu. Guðrún Nordal fékk tæp 40% atkvæða og verður kosið milli þeirra tveggja eftir rétta viku. Þriðji frambjóðandinn, Einar Steingrímsson fékk nær 11% atkvæða.


Góð kosningaþátttaka var á meðal kennara og starfsmanna skólans en athygli vekur dræm kjörfundarsókn stúdenta, en innan við helmingur þeirra mætti á kjörstað að þessu sinni, eða rétt um 5 þúsund af rösklega 14 þúsund stúdentum við Háskóla Íslands.  


Nýr rektor tekur við af Kristínu Ingólfsdóttur 1. júlí í sumar, en Kristín hefur gegnt rektorsembættinu í áratug.