Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir COVID-19 kórónaveirunni. Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms. Sýnataka og greining á veiru- og sýklafræðideild Landspítali staðfesti laust eftir kl. 13:00 í dag að maðurinn væri smitaður af COVID-19 kórónaveiru. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið hér á landi.
Í ljósi þessa mun ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkja hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingu af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi.
Var í skíðaferðalagi utan hættusvæðisins
Maðurinn sem greindist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu í skíðaferðalagi utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa staðfesta smits.
Einstaklingar sem finna fyrir veikindum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferðalaga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend símanúmer: +354 544-4113) til að fá leiðbeiningar. Þeir sem hafa verið í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra áhættusvæða. Ítarlegar upplýsingar um hina nýju kórónaveiru er að finna á landlaeknir.is og jafnframt upplýsingar um skilgreind áhættusvæði.