Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir er í viðtali hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld. Hann fer yfir hvers konar sótt kórónaveiran ber með sér og hvernig viðbrögð hafa verið sett upp hér á landi.
Hann segir líklegt að veiran komi hingað til lands en hún smitast svipað annarri flensu, Eins og er, er talið að hún smitist frá einstaklingi með veiruna þegar viðkomandi er orðinn veikur, með illt í lungum og beinverki. En ýmislegt sé ekki annars vitað, til dæmist hvort einstaklingur smiðtaður geti smitað aðra áður en hann finnur einkenni - líkt og stundum er með inflúensur.