Körlum kennt að girða sig í brók

Fyrsti þátturinn af Herrahorninu, nýjum og næsta karlmannlegum tískuþætti fyrir ósmartara kynið byrjar á Hringbraut í kvöld, en þar geta þeir jaxlar sem alla jafna hugsa ekkert um útlitið á sér fræðst og forvitnast um flottheit líðandi stundar.

Þáttunum er öðru fremur ætlað að vera kennslustund í því að klæða sig rétt og borginmannlega, en vandi margra karla er að bera fötin svo eftir því sé tekið. Má þar sem dæmi nefna að alltof fáir þeirra kunna að hnýta slauffu svo bragur sé að, bregða um sig slifsi með tilhlýðilegum hnúti, ellegar setja klút í hálsinn með sjarmerandi bravör. 

Í þáttunum karlmönnum kennt að velja réttar stærðir af skyrtum og buxum, jökkum og frökkum og velja sér liti sem henta þeirra litarafti og lögun.

Í lok hvers þáttar er svo hollráð um snyrtimennsku og kurteisi.

Karlmenn eru hvattir til að leyfa konunum sínum að horfa á þáttinn með sér, en með því móti gæti efni hans varðveist betur í huga þeirra.

Herrahornið er unnið í samvinnu við helstu kaupmenn og innanbúðardrengi hjá Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar - og sendir út í lit öll mánudagskvöld klukkan 20:00. 

Horfður á þáttinn og kllippur úr þættinum með því að smella hér