Kóreuríkin heita sögulegum sáttum

Leiðtogar Suður- og Norður-Kóreu hétu algerri afkjarnorkuvæðingu Kóreuskagans í sameiginlegri yfirlýsingu eftir sögulegan leiðtogafund í dag. Þeir ætla jafnframt formlega að binda endi á Kóreustríðið með friðarsáttmála, sem undirritaður verður síðar á þessu ári.

Kim Jong-un and Moon Jae-in hittust sunnan landmæranna. Þetta var í fyrsta skipti frá Kórestríðinu sem leiðtogi Norður-Kóreu steig þar fæti.

Í yfirlýsingunni sem Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu og Kim Jong-un leiðtogi N-Kóreu sendu út eftir fundinn sögðu þeir að fjandsamlegum aðgerðum ríkjanna í garð hvors annars yrði hætt, hlutlausa beltinu á landamærum ríkjanna yrði breytt í „friðarsvæði“, áróðursútsendingum þar hætt og bæði ríki fækkuðu í herafla sínum á svæðinu.

Til viðbótar vilja leiðtogarnir koma á þríhliða viðræðum með Bandaríkjunum og Kína, koma á endurfundum fjölskyldna sem sundruðust í stríðinu, koma á járnbrautar og vegasambandi milli ríkjanna yfir landamærin og auka samstarf sitt í við íþróttamót o.fl.