Kópavogur lánar fólki til íbúðakaupa

Ármann Kr Ólafsson, segir Kópavogsbæ hafa dustað rykinu af gamla verkamannabústaðakerfinu þegar verið er að ræða möguleika á kaupleiguíbúðum.

Þetta kerfi sé mjög sambærilegt, enda gangi það út á að fólk sem leigi íbúð í félagslega kerfinu, geti með kaupleigusamning, keypt tiltekna eign innan 5 ára og þá gengur leiguverðið að fullu leyti eða að hluta til upp í íbúðarkaupin. Þetta og fleira er meðal þess sem fram kom í viðtali við Ármann Kr Ólafsson, í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut á fimmtudagskvöld.

Ármann segir þær tillögur sem þverpólitískur starfshópur bæjarins vann, vera mikið hagsmunamál fyrir bæinn. Það komi til dæmis betur út fyrir sveitarfélagið að lána fólki vaxtarlaus verðtryggð lán, heldur en að niðurgreiða félagslegt húsnæði.

Þá segir Ármann mikilvægt að hvati fólks sé í rétta átt. Í dag sé það þannig að fólk í félagslegu húsnæði, eigi von á því að missa íbúðina ef það hækkar í launum. Þessu ætti í raun að vera öfugt farið, því með því að hækka í launum, eykst geta fólks til að geta eignast sitt eigið húsnæði. 

Hægt er að skoða þáttinn hér á hringbraut.is.