Verktakar eiga ekki að ráða því hvernig íbúðarbyggð mótast í hverfum, en þeir hafa til þessa fengið nokkuð frjálsar hendur um hvernig eignir verið er að byggja og fyrir hvaða markhóp.
Þetta kom fram í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkveldi, en þar sagði Ármann Kr Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, frá þeim áformum sem sveitarfélagið hefur í húsnæðismálum. Að þeim tillögum stóð þverpólitískur starfshópur, sem meðal annars hefur lagt fram þá tillögu að verktökum verði sett strangari skilyrði um hvernig eignir byggja má á ákveðnum svæðum. Með þessu móti er hægt að miðstýra því betur, hvernig byggð myndast í hverfum.
Eitt markmiða Kópavogs er að liðka fyrir fasteignakaupum ungs fólks. Fyrir ungt fólk, vantar hins vegar fleiri smærri og ódýrari íbúðir. Í tillögum starfshópsins er miðað við að ákveðin hverfi muni skilyrðast við að þar séu byggðar smærri og ódýrari eignir en víða annars staðar. Að sögn Ármanns, hefur verið vöntun á þessu því síðustu árin hefur meira verið byggt af stærri eignum fyrir annan markhóp en unga fólkið. Meðal þess sem Kópavogur ætlar að gera, er að leggja fram viðbótarlán vegna íbúðakaupa. Þessi lán eru þá vaxtarlaus verðtryggð lán.
Hægt er að skoða þáttinn hér á hringbraut.is.