Fjármálaráðherra hyggst ekki fella niður tolla af dömubindum og túrtöppum, algengum nauðsynjavörum kvenna, líkt og hann breytti skattlagningu á bleyjum og smokkum árið 2013.
Róbert Marshall þingmaður Bjartrar framtíðar lagði nýverið fram frumvarp, ásamt öðrum þingmönnum, þar sem lagt er til að skattur á dömubindum og túrtöppum verði lækkaður. Flokkssystir Róberts, Heiða Kristín Helgadóttir hefur bent á að hér sé um nauðsynjavörur fyrir konur að ræða sem þeir verði að kaupa, kyns síns vegna.
Fram kemur í grein á vef RÚV í síðustu viku, að dömubindi og túrtappar bera 24 prósenta virðisaukaskatt og því greiða konur um 230 þúsund krónur í skatt á ævinni fyrir þessar nauðsynjavörur.
Þetta kemur fram á upplýsingaveitunni Spyr.is, en þar spurði lesandi eftirfarandi spurningar: \"Í frétt á RÚV hefur komið fram að tollaniðurfelling á túrtöppum og dömubindum hefur í rauninni lítið sem ekkert að segja, því þessar vörur bera sjaldnast tolla. Mín spurning er: Mun Heiða Kristín beita sér fyrir því á þingi að skattur af þessum vörum verði felldur niður eða lækkaður, sjá nánar í frétt RÚV .
Spyr.is sendi fyrirspurnina til Heiðu Kristínar og svar hennar var þetta: \"Ég bar fram þessa spurningu þegar ég var á þingi til að velta upp hvort fjármálaráðherra hyggðist breyta þessu líkt og hann breytti skattlagningu á bleyjum og smokkum. Í svari hans kom fram að það væri ekki verið að vinna að því. Róbert Marshall þingmaður BF lagði fram frumvarp nýverið ásamt öðrum þingmönnum þar sem lagt er til að þessi skattur verði lækkaður.