Konurnar leiða áfram í reykjavík

Listar Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur hafa verið ákveðnir. Í Reykjavík norður leiðir Katrín Jakobsdóttir, formaður listann. Í öðru sæti verður Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingismaður og í því þriðja Andrés Ingi Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur. Nokkur mannabreyting er á listanum, þ.e. Árni Þór Sigursson er ekki lengur í efstu sætum, Steinunn Þóra færir sig upp um eitt sæti frá því síðast og Andrés Ingi kemur nýr í toppsætin.

Lista VG í Reykjavíkurkjördæmi suður mun Svandís Svavarsdóttir, alþingismaður leiða, Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi blaðamaður verður í öðru sæti, í stað Álfheiðar Ingadóttur sem var þar áður og Hildur Knútsdóttir, rithöfundur, verður í þriðja sæti í stað Ingimars Karls Helgasonar, blaðamanns.

Listanir voru samþykktir í gærkvöldi eftir tillögum uppstillingarnefndar flokksins í kjördæmunum tveimur.