Konur vilja áhrif í sjávarútvegi

Við sjáum í kvöld í Bryggjunni fróðlegar myndir af veiðum togarans Sirrý ÍS 36. Fylgjum með þegar hún leggur við bryggju í Bolgunarvík á mánudagsmorgni í nóvember - og þegar löndunarmenn taka við að athafna sig.  Sirrý er eini togari þorpsins og er á vegum útgerðarinnar Jakobs Valgeirs. Bryggjan fylgdist með lönduninni á aflanum sem áhöfninni þótti bara passlega mikill og í síðra lagi.  Það var í stilltu veðri í lok nóvember sem við skruppum um borð þar sem þrettán manns eru í áhöfn, meðal annars ungu mennirnir, Daði Valgeir Jakobsson og Hálfdán Jakobsson.

Jakob Valgeir er fjölskyldufyrirtæki sem heldur að miklu leyti uppi atvinnulífi í Bolungarvík. Hjá þeim starfa vel yfir 100 manns, á sjó, í vinnslunni og á fiskmarkaðnum sem fyrirtækið rekur við bryggjuna. Landvinnslan er upp á átta þúsund tonn á ári hverju.

Eigendurnir eru að stærstum hluta Flosi Valgeir Jakobsson og fjölskylda, Aðallega syni hans Jakob Valgeirs og eiginkonu. Linda ræddi við bróður Jakobs Valgeirs, Guðbjart Flosason.

Í þættinum kynnumst við breyttum tímum í sjávarútvegi en konur hafa nýverið stofnað Félag kvenna í sjávarútvegi sem í eru nú tugir félaga. Freyja Önundardóttir, formaður stjórnarinnar og Tinna Hrund Birgisdóttir stjórnarkona setja sniður með Sölva og segja frá tilganginum með þessu öllu saman. Freyja býr í 101 Reykjavík rekur þaðan útgerð á landsbyggðinni og Tinna Hrund starfar hjá Ópal sjávarfangi sem rekið er í Hafnarfirði.  

Þátturinn er í umsjón Lindu Blöndal og Sölva Tryggvasonar. Hann hefst kl.21.30 - og hann má líka finna á flakkinu eftir útsendingu.