Konur verða ráðandi í Reykjavík næstu fjögur árin. Aldrei áður hefur borgarstjórn endurspeglað fjölbreytileika borgarbúa með jafn skýrum hætti og í þeim átta framboðum sem kjörin voru. Sumir eru sigurvegarar og aðrir töpuðu illa. En ekkert er fyrirliggjandi um hvernig næsti borgarstjórnarmeirihluti verði samsettur.
Þannig hefst rýni Kjarnans á nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum.
Þar segir:
„Ein allra áhugaverðasta niðurstaða kosninganna er sú að konur verða í miklum meirihluta í Reykjavík næsta kjörtímabil. Alls eru 15 þeirra 23 borgarfulltrúa sem kjörnir voru í gær konur. Og sex þeirra átta framboða sem náðu kjöri eru leidd af konum. Einungis risarnir tveir, flokkarnir sem gera tilkall til borgarstjórastólsins í krafti stærðar sinnar, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking, eru leiddir af körlum. Þá voru tveir frambjóðendur sem fæddir eru í öðru landi kjörnir í borgarstjórn og nýr yngsti borgarfulltrúi sögunnar er af blönduðum uppruna“.
Ljóst er að mikilla breytinga er að vænta við stjórnun Reykjavíkurborgar. Ný öfl með nýjar áherslur munu koma að henni óháð því hvaða meirihluti verður á endanum myndaður.
Rýni Kjarnans eftir kosningarnar í borginni má lesa hér.
Þar segir einnig:
„Það eru margir sem telja sig sigurvegara kosninganna í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig 5,1 prósentustigi milli kosninga. Það er langmesta bætingin hjá þeim flokkum sem sátu í borgarstjórn á kjörtímabilinu sem er að líða. Sjálfstæðisflokkurinn er líka orðinn stærsti flokkurinn í höfuðborginni að nýju og niðurstaða hans er betri en nær allar kannanir, og raunar allur aðdragandi kosninganna, benti til. Í þessu ljósi vann Sjálfstæðisflokkurinn augljósan sigur\".