Konur styðja stjórnina mun síður

Einungis þriðjungur kvenna styður ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á meðan fjórir af hverjum tíu karlmönnum er henni ekki afhuga að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun sem Fréttablaðið birtir í dag.

Samkvæmt niðurstöðunni styðja 43% karla stjórnina, en 57% þeirra eru henni andvígir. Aftur á móti styðja einungis 29% þeirra kvenna sem afstöðu tóku ríkisstjórnina, en heil 71% styður hana ekki.

Hægristjórnin sem nú situr er álíka óvinsæl og vinstristjórnin var á sama tíma á síðasta kjörtímabili, en þá snerist dæmið reyndar við; fjórar af hverjum tíu konum studdi þá stjórn en aðeins þriðjungur karla.

Anna Kolbrún Árnadóttir formaður Landssambands framsóknarkvenna kveðst í samtali við Fréttablaðið í ætla að aukið fylgi kvenna við ríkisstjórnina muni skila sér þegar mjúku málin fái aukið vægi á síðari hluta kjörtímabilsins og nefnir hún þar jafnréttismál og húsnæðismál.