\"Ég dáist að ungum konum sem vilja frelsa brjóstin undan klámvæðingunni. Gott hjá þeim að berjast fyrir frelsun geirvörtunnar,\" skrifar sjónvarpskonan Sirrý í nýjum pistli sínum á hringbraut.is sem fjallar um þennan endalausa áhuga á berum konum.
Hún skilur ekki hvað nekt kvenna er ennþá mikið feimnismál: \"Það er hálf brjóstumkennanlegt að sjá hvernig Hollywoodstjörnur, sem sýna næstum allt, fara á límingunum ef geirvartan sést eða bossinn birtist í blaði. Hvað er svona merkilegt við það? Það sést hvort sem er nánast allt þegar dísirnar birtast á rauða dreglinum.\"
Sirrý spyr í pistli sínum hvers vegna það sé látið svona mikið með bert kvenfólk? \"Er ekki málið að hugsa aðeins hærra og hefja sig upp yfir þetta brjósta- og bossadæmi,\" spyr hún jafnframt og bætir því við að margir séu komnir með nóg af því að berrassaðar konur þyki eitthvað svakalegra myndefni en naktir karlar. Nýlega hafi hún verið á Spánarströnd þar sem Evrópubúar spókuðu sig um hálfnaktir og þar hafi sannleikurinn komið í ljós: \"Munurinn á líkömum karla og kvenna er minni en af er látið. Karlar eru margir hverjir komnir með brjóst á stærð við meðalkonur og konur eru margar með vömb á stærð við meðalístrubelg. Munurinn á kynjunum virðist minnka eftir því sem við fitnum.\"
Og niðurstaða henni er þessi: \"Er ekki málið að spá meira í hvað við látum ofan í okkur, hvað við látum út úr okkur og í hvað við verjum tímanum heldur en að vera stöðugt í þessari opinberu nöktu naflaskoðun,\" spyr Sirrý að lokum.