Konur koma fúsar í fjölmiðla

Enn eru konur um þriðjungur þeirra sem mæta í fréttaviðtöl og dagskrárþætti stóru fjölmiðlanna. Ný könnun Creditinfo sýnir að mjög mismunandi er eftir fjölmiðlum hvort konur séu sýnilegar í dagskránni.

Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo kynnti í morgun á fundi FKA nýjar tölum um hver konur eru sýnilega sem viðmælendur í fjölmiðlum og almennt í ljósvakamiðlum. 

Tæplega 10 þúsund fréttir í ljósvakamiðlum voru mældar á árs tímabili, frá 1.september í fyrra til 31.ágúst 2016. Þegar þættir í ljósvakamiðlum eru taldir með voru skoðaðar 14.400 fréttaviðtöl og önnur viðtöl. Mæld voru Rás 1 og Rás 2, Bylgjan, Sjónvarpið og Stöð 2. 

Karlmenn voru viðmælendur í 67 prósent tilvika en konur 33 prósent. Það er 3 prósent aukning á hlut kvenna frá síðustu mælingu. 

Brynja greinir frá niðurstöðunum á Þjóðbraut í kvöld og ásamt henni mætti í viðtal Helga Arnardóttir, einn stjórnenda Kastljóss og stjórnarmaður í Blaðamannafélaginu. Hún sagðist ekki verða vör við í sínu starfi að konur væru tregar til að mæta í viðtöl eins og einatt er nefnt. Hins vegar hafi hún orðið vör við að karlkyns kollegar sínir upplifðu erfiðleika við að fá konur. 

Félag kvenna í atvinnulífinu héldu í morgun stórt málþing um efnið þar sem félagsmálaráðherra mætti auk útvarpsstjóra og forstjóra 365 miðla. Á fundinum sögðust þeir ætla að gera enn betur í þessum efnum með sínu starfsfólki. Helga sagði þó að innan RÚV yrði hún mikið vör við að stjórnendum umræðuþátta og fréttamönnum væri orðið eðlislægt að hafa jöfn kynjahlutföll í þáttum sínum.