Það verður ekki vikið stöku orði að ESB í sjónvarpsþættinum Kvennaráðum á Hringbraut í kvöld, heldur fjallað um það hlutskipti að lifa án maka eftir fertugt. Það getur jú verið býsna snúið, eins og einn gesta þáttarins, barþjónninn Sveinn Rúnar Einarsson þekkir. Hann hefur orðið vitni að ýmsu í starfi sínu og segir nokkrar sögur í Kvennaráðum, svo sem þá að nýlega hafi komið kona á barinn hans sem greinilega hafi verið fráskilin. Hún hafi beðið barþjónana um álit á karlmönnum sem hún sá á Tinder appinu. „Svo segir hún nei, heyrðu, heldurðu að þetta sé ekki vinur sonar míns! Og það kom instant match um leið! Og svo byrja þau bara að spjalla!.“
Önnur saga er Sveini Rúnari hugleikin og hana lætur hann flakka í þættinum. Sagan er af tveimur einhleypum flugfreyjum sem mættu á svæðið þegar hann var að vinna á ónefndum bar fyrir nokkrum árum. "Þær komu á barinn á fimmtudagskvöldi og voru í löngu helgarfríi. Svo kynntust þær breskum körlum á hótelinu sem rekið var samhliða barnum og það endaði með því að þar voru þær alla helgina; voru komnar í föt af þeim, í skyrtur af þeim og völsuðu um hótelið og hótelbarinn og skrifuðu allt á herbergið þeirra," lýsir barþjónninn og klikkir út með þessum orðum: "Þær áttu bara svona skemmtilegt fling með þeim."
Í Kvennaráðum ræða líka þær Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og ráðgjafarnir Linda Baldvinsdóttir og Gerður Arinbjarnardóttir um stefnumótamarkaðinum eftir fertugt. Þegar talið berst að því hvort einungis karlar séu að leita sér að einnar nætur gamni á stefnumótaöppum segja þær stöllur að það sé ekki endilega munur á kynjunum hvað þetta varðar, eða eins og Elva Ósk orðar það í þættinum: „Talandi um kynlíf, þá held ég að konur séu alveg jafn mikið á höttunum eftir kynlífi og karlmenn.“