Eftir þær tvær vikur sem sjónvarpsstöðin Hringbraut hefur verið í loftinu eru konur í hópi viðmælenda heldur fleiri en karlar. 30 konur hafa komið fram í þáttunum, en 28 karlar.
"Þetta er í samræmi við gildi og leiðarljós Hringbrautar, jafnt sjónvarps og vefmiðils, þar sem kveðið er á um mannvirðingu, umburðarlyndi og jafnrétti," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrár- og ritstjóri miðlanna. "Hjá okkur gildir sú regla að jafn margar konur annast þáttastjórn og karlar og gildir það sama um pistlaskrif á vefnum. Þess verður og gætt að jafnræði sé á milli kynja hvað viðmælendur í sjónvarpi varðar," segir Sigmundur Ernir og minnir á að fjölmiðlar eigi að endurspegla samfélagið eins og það sé - og þar sé einmitt að finna jafn margar konur og karla.
Listi yfir hlutfall kynja í hópi viðmælenda á Hringbraut verður birtur á tveggja vikna fresti á hringbraut.is
Konur í meirihluta
Fleiri fréttir
Nýjast