Konur í fjölmiðlum: sama staða og 2000

Hlut­fall kven­kyns viðmæl­enda í fjöl­miðlum hef­ur sára­lítið vænkast síðastliðin 15 ár, að því er fram kom á Jafnréttisþingi í dag, en þar var farið yfir niðurstöðu viðmælendagreiningar velferðarráðuneytisins og Fjölmiðlavaktarinnar.

Þar er gerð grein fyrir kyni þeirra viðmæl­anda sem komið höfðu fram í völd­um fréttaþátt­um í út­varpi og sjón­varpi á tíma­bil­inu sept­em­ber 2014 til sept­em­ber 2015 - og segir Rósa Guðrún Erl­ings­dótt­ir, sem fór yfir niðurstöðuna á þinginu að lítið hefði mjakast í þessum efnum frá aldamótum: \"Þess­ar töl­ur koma að mörgu leiti á óvart. Þegar ég sá töl­urn­ar fyrst hugsaði ég að við hefðum allt eins getað fjallað um niður­stöðu könn­un­ar sem gerð var árið 2000 og greindi hlut kvenna í fjöl­miðlum,“ segir hún í samtali við mbl.is í dag.

Í frétt miðilsins er rifjað upp að fyrr í vik­unni hafi birst niður­stöður nýrr­ar alþjóðlegr­ar rann­sókn­ar sem sýnt hafi að kon­ur væru um­fjöll­un­ar­efni eða viðmæl­end­ur í um fjórðungi frétta í heim­spress­unni en hér á landi væri hlut­fallið minna, eða um 20%. Hér á landi væri rætt  við eða fjallað um kon­ur í 33% þeirra frétta sem kon­ur vinna fyr­ir ís­lenska fréttamiðla en fyr­ir karl­kyns frétta­menn væri hlut­fallið aðeins 8%.

Í grein­ingu vel­ferðarráðuneyt­is­ins var m.a. bor­inn sam­an viðmæl­enda­fjöldi í frétta­tím­um og völd­um þátt­um Rík­is­út­varps­ins sem og í frétta­tím­um og völd­um þátt­um 365 miðla. Í sjón­varps­frétta­tím­um RÚV voru kon­ur á bil­inu 31,4 til 32,6% viðmæl­enda og í sjón­varps­frétt­um 365 voru þær 30,7% viðmæl­enda. Í út­varps­frétta­tím­um RÚV hækkaði hlut­fall kvenna eft­ir því sem leið á dag­inn úr 25,6% til 29,8% viðmæl­anda og sama var uppi á ten­ingn­um hjá 365 þar sem kon­ur voru 22,9% viðmæl­enda í morg­un­frétt­um og 26,8% í há­deg­is­frétt­um.

\"Maður skyldi ætla að RÚV myndi gera bet­ur en raun­in er, þó hann komi bet­ur út en 365,“ segir Rósa á mbl.is og vísar til þess að ann­ar miðill­inn væri einka­rek­inn en hinn rík­is­rek­inn. Hún birti jafn­framt lista yfir vin­sæl­ustu viðmæl­end­ur í út­varpi eft­ir miðlum og þátt­um og benti á að karl­ar væru sér­sta­kelga áber­andi sem álits­gjaf­ar í morg­unþátt­um 365: \"Þeir koma oft­ast í pör­um,“ benti Rósa á og bætti við: \"Það ætti að vera auðvelt að bjóða einni konu.“

Aðeins ein kona komst inn á list­ann yfir 10 vin­sæl­ustu viðmæl­end­ur út­varpsþátta en það var Katrín Jak­obs­dótt­ir í fjórða sæti list­ans. Efst­ur var Bjarni Bene­dikts­son, þá Þor­steinn Víg­lunds­son og þriðji var Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son. Sam­tals voru fimm kon­ur á list­an­um þegar hann var lengd­ur í 20 manns en þar sat Vig­dís Hauks­dótt­ir í 13. sæti, Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir í 16. Sæti, Eygló Harðardótt­ir í 17. sæti og Ólafía B. Rafns­dótt­ir í 20. sæti.

Rósa kveðst hugsi vegna þess: \"Er kom­inn tími til að breyta og tími til að grípa til rót­tæk­ari aðgerða eða eig­um við að hinkra í eins og 20 ár til viðbót­ar,“ spyr hún í þessari samantekt á mbl.is í dag.

Í þessu efni má geta þess að sjónvarpsstöðin Hringbraut birtir mánaðarlega tölur úr kynjabókhaldi stöðvarinnar, en þar er staðan yfir viðmælendur þessi í dag; 594 konur, 609 karlar, en stefna stöðvarinnar er að aldrei halli á annað kynið í þáttum hennar þegar á heildina er litið.