Allir fimm framsögumenn á opnum fundi Samtaka iðnaðarins um íbúðamarkaðinn sem fram fer á morgun eru karlar. Fjöldi kvenna hefur gagnrýnt þetta val samtakanna á ræðumönnum.
Brynhildur S. Björnsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar spyr á fésbók sinni hvort um grín sé að ræða. Hildur Steinþórsdóttir arkitekt biður konur um að fjölmenna á fundinn og hefur í því skyni haft samband við 45 kvenarkitekta.
Brynhildur orðar hugsanir sínar á þennan veg: \"Fallegt af þeim samt að splæsa í konu í fundarstjórn. Nei stans. Ég tryllibilast yfir þessari pungastemmningu. Andskotinn.\"
Fjöldi kvenna tekur undir gagnrýni Brynhildar í athugasemdum við færslu hennar. Þannig spyr Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, í augljósri hæðni hvort þetta endurspegli samsetningu Samtaka iðnaðarins, enda séu framsögumennirnir allir, utan formaður Stúdentaráðs, með starfstitla þaðan. Freyja Haraldsdóttir, varaþingkona Bjartrar framtíðar, segir gott að hafa eina konu á fundinum, í hlutverki fundarstjóra. Þannig sé hægt að tikka í konuboxið. Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar segir einfaldlega“ „Gargh!“
Hildur Steinþórsdóttir hvetur kvenarkitekta til að mæta á fundinn og merkir fjölda þeirra í Facebook-færslu sinni. Undir það taka margir í athugsemdum: \"Er það GRÍN að allir framsögumenn opins fundar um íbúðamarkaðinn séu karlmenn? Fallegt af þeim samt að splæsa í konu í fundarstjórn. Nei stans. Ég tryllibilast yfir þessari pungastemmningu. Andskotinn.\"